Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 20. september 2014 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Deportivo: Ramos er í uppáhaldi hjá mér
Mynd: Getty Images
Victor Fernandez, þjálfari Deportivo La Coruna á Spáni, myndi velja Sergio Ramos úr liði Real Madrid ef hann væri í þeirri stöðu að hann gæti valið einn leikmann úr liðinu.

Deportivo mætir Real Madrid í dag en Deportivo hefur farið tímabilið vel af stað og er með fjögur stig, stigi meira en Real Madrid.

Fernandez var spurður af spænskum fjölmiðlum að ef hann fengi að velja einn leikmann úr liði Real Madrid hver yrði þá fyrir valinu. Hann valdi Sergio Ramos framyfir Cristiano Ronaldo.

,,Sergio Ramos er í uppáhaldi hjá mér. Hann gerir allt svo vel, hann er leiðtogi og heimsmeistari. Ég væri ánægður með bæði hann og Cristiano Ronaldo!," sagði Fernandez.
Athugasemdir
banner
banner