Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. apríl 2018 08:30
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikur: Jafnt hjá KR og Keflavík
Kennie Chopart skoraði mark KR.
Kennie Chopart skoraði mark KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 1 - 1 Keflavík
1-0 Kennie Chopart
1-1 Juraj Grizelj

KR og Keflavík gerðu 1-1 jafntefli í æfingaleik sem fór fram á gervigrasvelli KR í gær.

Kennie Chopart kom KR yfir eftir hornspyrnu en Juraj Grizelj jafnaði úr óbeinni aukaspyrnu sem var dæmd á Beiti Ólafsson markvörð KR fyrir að vera of lengi með boltann í höndunum.

Um var að ræða síðasta leik beggja liða fyrir Pepsi-deildina. KR heimsækir Val í fyrstu umferðinni á föstudag á sama tíma og nýliðar Keflavíkur heimsækja Stjörnuna.

Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir
banner