Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 21. apríl 2018 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ætlar að fagna með víni frá Mourinho
Carlos Carvalhal er hress.
Carlos Carvalhal er hress.
Mynd: Getty Images
Swansea er í góðri stöðu í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að vera bara sæti fyrir ofan fallsæti. Liðið er fjórum stigum frá fallsætinu og á leik til góða á Southampton, sem er í 18. sæti.

Staðan er því góð og er Carlos Carvalhal, stjóri Swansea, orðinn nokkuð vongóður um að liðið muni halda sér uppi. Hann veit nákvæmlega hvernig hann mun fagna þegar liðið verður komið með öruggt sæti í deildinni á næsta tímabili.

„Ég er með flösku sem Jose Mourinho gaf mér þegar við spiluðum gegn þeim, flösku af portúgölsku víni," sagði Carvalhal við Sky.

„Ég mun opna hana með starfsliði mínu ef við höldum okkur í ensku úrvalsdeildinni eins og við gerum ráð fyrir."

„Þetta er sérstök flaska. Ég hélt því vegna þess að vínið er frábært. Mourinho gaf okkur það og við munum nota það á sérstökum degi. Ég hlakka til að opna vínið, ég er mjög spenntur fyrir því en fyrst verðum við að einbeita okkur að stigasöfnun."

Swansea var ekki í góðum málum þegar Carvalhal tók við en hann hefur hjálpað liðinu að klifra upp töfluna.

Swansea heimsækir Englandsmeistara Manchester City á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner