Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. apríl 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Aron Einar: Við sýndum mikinn karakter
Mynd: Getty Images
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Cardiff sem sigraði Nottingham Forest, 2-1.

Aron Einar reyndist hetja Cardiff þegar hann skoraði sigurmark leiksins á 74. mínútu.

„Við þurftum að berjast mikið í dag og sem betur fer fengum við stigin þrjú," sagði Aron Einar.

„Við sýndum mikinn karakter með að klára þetta því Forest hafði engu að tapa og vildi stigin þrjú, en við vorum ákveðnari og náðum í stigin."

Cardiff City heimsækir Derby á þriðjudaginn og með sigri þar geta þeir náð fjögra stiga forskoti á Fulham sem er í þriðja sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner