Það var heil umferð í Pepsi-deildinni í gær og glæsileg mörk voru skoruð.
Það var líf og fjör í Víkinni þar sem Stjarnan kom í heimsókn og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli. Sömu úrslit voru í skemmtilegum leik í Vestmannaeyjum milli ÍBV og Leiknis.
Það var líf og fjör í Víkinni þar sem Stjarnan kom í heimsókn og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli. Sömu úrslit voru í skemmtilegum leik í Vestmannaeyjum milli ÍBV og Leiknis.
Breiðablik vann sinn fyrsta sigur, KR-ingar eru komnir á sigurbraut og FH vann stórsigur gegn ÍA.
Þá vann Fjölnir mikilvægan sigur á Keflavík en öll mörkin má sjá í markasyrpu Pepsi-markanna sem Vísir.is hefur birt og sjá má hér að neðan.
Með því að smella hér má lesa um alla leikina sex.
Athugasemdir