Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. maí 2017 22:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Griezmann hefur lengi reynt að fá mig til Atletico"
Lacazette er að ganga í raðir Atletico.
Lacazette er að ganga í raðir Atletico.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Alexandre Lacazette er að ganga í raðir Atletico Madrid. Hann segir að landi sinn, Antoine Griezmann, hafi lengi reynt að fá sig til Madrídar. Nú er það loksins að gerast.

Lacazette hefur staðfest það að hann sé á förum frá Lyon.

„Ég hef ákveðið að fara frá Lyon í bili, en ég er ekki enn farinn. Ég hef hugsað um þetta lengi," sagði Lacazette.

„Það er erfitt að segja nei við félag eins og Atletico ef þeir spyrja þig. En það er ekki aðeins Atletico."

„Antoine (Griezmann) hefur lengi verið að reyna að fá mig til Atletico," sagði Lacazette að lokum.

Atletico er sem stendur í félagsskiptabanni, en ef því verður aflétt þá mun Lacazette að öllum líkindum fara til Madrídar.
Athugasemdir
banner
banner