Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. júlí 2014 09:28
Magnús Már Einarsson
Gylfi farinn heim úr æfingaferð Tottenham
Gylfi er á leið til Swansea á nýjan leik.
Gylfi er á leið til Swansea á nýjan leik.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er farinn heim úr æfingaferð Tottenham en Daily Telegraph greinir frá þessu.

Gylfi er á leið til Wales þar sem hann mun ganga frá samningum við Swansea á næstu dögum.

Ben Davies, vinstri bakvörður Swansea, er á leið til Tottenham en Gylfi mun fara í hina áttina.

Gylfi þekkir vel til hjá Swansea en hann sló í gegn á láni hjá liðinu fyrir hluta árs 2012.

Hinn 24 ára Gylfi var tekinn úr byrjunarliði Tottenham fyrir æfingaleik gegn Seattle Sounders á laugardag og í kjölfarið hélt hann aftur til Bretlands til að ganga frá samningum við Swansea.
Athugasemdir
banner
banner