Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. nóvember 2014 17:20
Magnús Már Einarsson
Veðbanki borgar þeim sem tippuðu á titil hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Veðbankinn Paddy Power hefur ákveðið að borga þeim sem hafa tippað á að Chelsea verði enskur meistari á þessu tímabili.

Einungis ellefu umferðir eru búnar í ensku úrvalsdeildinni en Chelsea hefur byrjað tímabilið frábærlega og margir telja að ekkert geti stöðvað liðið í átt að titlinum.

Paddy Power er á sama máli og þeir sem tippuðu á að Chelsea yrði meistari hafa strax fengið vinninginn.

Chelsea er fjórum stigum á undan Southampton og átta stigum á undan Manchester City sem er í þriðja sætinu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner