Frakkinn Antoine Griezmann skoraði í kvöld sitt hundraðasta mark í La Liga, hann er annar Frakkinn til að ná þessum árangri en Karim Benzema var sá fyrsti.
Antoine Griezmann skoraði hundraðasta mark sitt gegn Espanyol í leik sem fór 1-0.
Af þessum 100 mörkum skoraði hann 69 mörk með vinstri fæti, 11 með hægri fæti og 20 með skalla.
Griezmann spilaði sinn fyrsta leik í La Liga með Real Sociedad í ágúst 2010, hann skoraði sitt fyrsta mark í deildinni í október sama ár.
Hann skoraði 40 mörk fyrir Real Sociedad í La Liga í 141 leik og 60 mörk í 106 leikjum hjá Atletico Madrid í deildinni, hann náði því að skora hundraðasta mark sitt í 247 leik sínum í La Liga.
100 - Antoine Griezmann has become the second Frenchman to reach 100 goals in La Liga after Karim Benzema (120). Gourmet. pic.twitter.com/UVroMYRnsB
— OptaJose (@OptaJose) April 22, 2017
Athugasemdir