Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. maí 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Stuðningsmennirnir eyðilögðu þetta fyrir mér"
Stuðningsmenn hlupu inn á völlinn.
Stuðningsmenn hlupu inn á völlinn.
Mynd: Getty Images
Steve Morison var hetja Milwall þegar liðið tryggði sér sæti í Championship-deildinni í gær. Hann skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri á Bradford í úrslitaleik um sæti í Championship-deildinni.

Morrison var þó ekki sáttur í viðtali eftir leik. Hann var mjög svekktur með hegðun stuðningsmanna eftir sigurinn.

Lögreglan hafði í nógu að snúast, en 12 voru handteknir á leiknum fyrir ýmis brot, þar á meðal fyrir vörslu eiturlyfja og að hlaupa inn á völlinn. Margir stuðningsmenn Milwall hlupu inn á völlinn eftir leik.

„Þetta pirrar mig, ég get ekki einbeitt mér núna og ég get ekki fagnað," sagði Steve Morison í viðtali.

„Þeir eyðilögðu þetta fyrir mér," sagði hann einnig.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner