Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 22. júlí 2017 12:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Margrét Lára: Klæjar í tærnar að fá að vera með
Margrét Lára í viðtali.
Margrét Lára í viðtali.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég hef það mjög gott. Það er sól og blíða og EM, það er ekki hægt að hafa það betra," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir þegar Fótbolti.net heyrði í henni í Hollandi í dag.

Margrét getur ekki tekið þátt á EM vegna meiðsla. Hún er samt mætt til að styðja liðið.

Ísland tapaði naumlega gegn Frakklandi á þriðjudag og þar var Margrét í stúkunni. Hún verður þar aftur þegar Ísland mætir Sviss seinna í dag í gríðarlega mikilvægum leik.

„Það var frábært en líka ofboðslega erfitt," sagði hún aðspurð hvernig það hefði verið að fylgjast með Frakkaleiknum úr stúkunni.

„Maður fylltist náttúrulega miklu stolti að horfa á stelpurnar og sjá þessa frábæru frammistöðu, en að sama skapi klæjar manni í tærnar að fá að vera með."

Margrét býst við hörkuleik í dag.

„Þetta verður stál í stál. Bæði lið eru brennd eftir fyrstu umferð, Svisslendingarnir eflaust pirraðir. Ég veit að við vinnum þennan leik."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan, en þar ræðir Margrét m.a. um markaleysi íslenska liðsins í undanförnum leikjum.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner