Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 22. ágúst 2014 12:30
Magnús Már Einarsson
Samaras til WBA (Staðfest)
Mynd: WBA
West Bromwich Albion hefur samið við gríska framherjann Georgios Samaras.

Samaras skrifaði undir tveggja ára samning við WBA í dag en samningur hans við Celtic rann út á dögunum.

,,Hann hefur spilað fótbolta á meðal þeirra bestu, í Meistaradeildinni, á HM og EM," sagði Alan Irvine stjóri WBA.

Samaras skoraði 73 mörk í 249 leikjum með Celtic eftir að hann kom til félagsins frá Manchester City árið 2008.
Athugasemdir
banner