Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. september 2017 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Aubameyang: Ég hafði áhuga á Milan
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang segist hafa haft áhuga á að ganga til liðs við AC Milan í sumar.

Aubameyang hóf ferilinn sinn í unglingaliði Milan fyrir rúmlega tíu árum síðan, þegar hann var enn táningur.

„Það er satt, Milan komst í samband við mig og gerði mér tilboð," sagði Aubameyang við RMC.

„Ég var mjög spenntur fyrir verkefninu þar en félagsskiptin gengu ekki í gegn af mörgum ástæðum."

Óljóst er hver vandamálin voru, en launakröfur og verðmiði eru líklegir sökudólgar þar sem Dortmund neitaði að selja sóknarmanninn fyrir minna en 80 milljónir evra.

Aubameyang var samningsbundinn Milan í fimm ár en seldur svo til Saint-Etienne fyrir aðeins 1.8 milljón evra í janúar 2012.

Auba hefur byrjað tímabilið venjulega með Dortmund og er kominn með níu mörk í átta keppnisleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner