Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. nóvember 2014 19:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Ronaldo með tvö í sigri á Eibar
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid í kvöld
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid í kvöld
Mynd: Getty Images
Eibar 0 - 4 Real Madrid
0-1 James Rodriguez ('23 )
0-2 Cristiano Ronaldo ('43 )
0-3 Karim Benzema ('69 )
0-4 Cristiano Ronaldo ('83 , víti)

Real Madrid vann Eibar nokkuð örugglega á útivelli er liðin mættust í kvöld en Cristiano Ronaldo gerði tvö mörk fyrir gestina.

Kólumbíski snillingurinn James Rodriguez kom Real Madrid yfir strax á 23. mínútu með skalla áður en Ronaldo bætti við öðru marki undir lok fyrri hálfleiks.

Karim Benzema skoraði þriðja mark Madrídinga eftir magnaða sendingu Rodriguez sem tókst að halda boltanum inná á einhvern ótrúlegan hátt.

Ronaldo skoraði svo fjórða og síðasta mark leiksins með marki úr vítaspyrnu á 83. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki. Lokatölur 0-4 Madrídingum í vil sem eru áfram á toppnum með 30 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner