„Þetta var ótrúlega svekkjandi. Við settum okkur markmið fyrir mótið að fara uppúr riðlinum og maður hefði viljað að Frakkarnir myndu klára Austurríki, þá hefði þetta verið séns," sagði fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, Sara Björk Gunnarsdóttir aðspurð að því hvernig henni leið eftir að það var ljóst að Ísland væri úr leik á EM.
Íslenska liðið var með markmið um að komast uppúr riðlinum og jafnvel lengra. Voru þau markmið of háleit?
„Alls ekki. Við settum okkur háleit markmið en að öðruleyti raunhæf," sagði Sara sem hefði viljað gera meira í leikjunum í tveimur.
„Mér fannst ég gefa allt í leikina og reyndi að gera mitt besta. Ég hefði viljað vera meira inn í leikjunum. Minn styrkleiki er kannski þegar ég er meira með boltann. Það er leiðinlegt að segja það eftir á en maður hefði viljað vera meira inn í leikjunum."
„Við breyttum um kerfi og ég held að þetta kerfi hjálpi okkur til að fá fleiri færi. Við þurfum bara að nýta þessi færi betur. Sóknarlega er þetta mjög gott kerfi fyrir okkur. Síðan eru hlutir eins og föst leikatriði sem við verðum að vera betri í. Við eigum að vera best í föstum leikatriðum og þurfum að skora fleiri mörk út frá föstum leikatriðum," sagði Sara, en hvað þarf liðið að gera betur í föstum leikatriðum?
„Hlaupin þurfa að vera betri og við verðum að vera ákveðnari. Síðan þurfum við að koma boltanum betur inn í teig andstæðingana og gera heilt yfir betur."
Sara og Dagný Brynjarsdóttir hafa myndað sterkt par á miðjunnni hjá íslenska landsliðinu. Dagný náði aðeins að spila 15 mínútur með íslenska liðinu á þessu ári, fyrir EM.
„Í undirbúningnum saknaði ég Dagnýjar en hún kom vel inn í mótið," sagði Sara Björk.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir