Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. desember 2014 21:30
Alexander Freyr Tamimi
Engar fyrirspurnir borist vegna Berahino
Saido Berahino er orðaður við ýmis stærri félög.
Saido Berahino er orðaður við ýmis stærri félög.
Mynd: Getty Images
Alan Irvine, stjóri West Bromwich Albion, segir að engar fyrirspurnir hafi borist vegna framherjans Saido Berahino.

Talið er að Liverpool eða Tottenham gætu reynt að næla sér í Berahino í janúarglugganum, en þessi bráðefnilegi framherji hefur skotist upp á stjörnuhimininn að undanförnu.

Berahino hefur skorað sjö mörk á tímabilinu, en Irvine býst við því að hann verði áfram hjá West Brom þrátt fyrir sögusagnirnar.

,,Okkur hafa alls engar fyrirspurnir borist, svo ég er ekki viss um hvaðan þessar sögur koma," sagði Irvine.

,,Stjórnarformaðurinn hefur þegar sagt að hann vilji ekki selja Saido í janúar og ég held að ekkert hafi breyst í þeim efnum. Þetta eru allt saman vangaveltur."

Athugasemdir
banner
banner