Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   fös 24. mars 2017 22:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hannes: Þetta var hættulegur og erfiður leikur
Icelandair
Hannes var kátur með sigurinn.
Hannes var kátur með sigurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var hættulegur og erfiður leikur að mörgu leyti að fara í," sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, eftir 2-1 sigur á Kosóvó í undankeppni HM í kvöld.

„Þeir eru með flott fótboltalið og sýndu það í upphafi leiks og upphafi seinni hálfleiks að þeir eru mjög góðir," sagði Hannes enn fremur um mótherja Íslands í kvöld.

Lestu um leikinn: Kosóvó 1 -  2 Ísland

Ísland komst í 2-0 og þannig var staðan þegar dómarinn flautaði til hálfleiks, en leikmenn Kosóvó komu grimmir inn í seinni hálfleikinn og náðu að minnka muninn snemma.

„Þeir komu náttúrulega bara grimmir út í seinni hálfleikinn, settu mikla pressu á okkur og náðu að setja þetta mark. Þá auðvitað var þetta bara galopið, en við erum með lið sem hefur margoft verið í þeirri stöðu að þurfa að sigla heim eins marks úrslitum og við gerðum það virkilega vel og fagmannlega í kvöld."

Sigurinn var gríðarlega mikilvægur, en framundan er toppslagur í Laugardalnum á móti Króatíu í júní!

„Ég myndi segja að þetta hafi verið algjör lykill upp á framhaldið í riðlinum. Ef við hefðum misstigið okkur í dag, þá hefði þetta orðið á brattann að sækja," sagði Hannes að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner