Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. maí 2015 08:00
Stefán Haukur
Simeone: Frábært tímabil
Simeone er ánægður með sína menn
Simeone er ánægður með sína menn
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Athletico Madrid, segir árangur liðsins á þessu tímabili frábæran.

Athletco Madrid vann titilinn á ótrúlegan hátt í fyrra og var það í fyrsta sinn sem annað lið en Real Madrid eða Barcelona vann titilinn síðan árið 2004.

Þrátt fyrir að hafa endað 16 stigum á eftir Barcelona er hann mjög ánægður með niðurstöðuna.

„Þetta er frábært," sagði Simeone í viðtali eftir leikinn. „Við unnum Spænska Ofurbikarinn, lentum í þriðja sæti og gekk ágætlega í Meistaradeildinni og Copa del Rey."

„Þetta hefur verið ótrúlegt tímabil. Allir hafa unnið vel, bæði leikmennirnir og starfsmennirnir. Þetta fólk er það sem þessi klúbbur snýst um og aðdáendurnir eru stoltir."

„Ég gæti ekki beðið um meira," bætti hann við.
banner
banner
banner