Liverpool lauk tímabili sínu á því að vinna Ástralíumeistara Sydney 3-0 í skemmtilegum æfingaleik sem fram fór í Ástralíu í morgun.
Léttleikinn var ráðandi í leiknum sem Liverpool vann 3-0 með mörkum Daniel Sturridge, Roberto Firmino og Alberto Moreno. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik.
Steven Gerrard, Jamie Carragher, Daniel Agger og Steve McManaman tóku allir þátt í leiknum.
Liverpool hafnaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar og fer í forkeppni Meistaradeildarinnar.
— Liverpool FC (@LFC) May 24, 2017
Athugasemdir