Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. nóvember 2015 06:00
Fótbolti.net
Viktor Örn æfir með Þrótti
Viktor í leik með Fjarðabyggð síðasta sumar.
Viktor í leik með Fjarðabyggð síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Viktor Örn Guðmundsson hefur æft með Þrótti að undanförnu en 433.is greindi frá.

Viktor lék með Fjarðabyggð í 1. deildinni í sumar en samningur hans er runninn út. Viktor lék 19 leiki með liðinu sem hafnaði í sjöunda sæti 1. deildarinnar.

Viktor er 26 ára og er uppalinn í FH en hefur einnig leikið fyrir Víking Reykjavík og Fylki.

Samkvæmt frétt 433 mun Viktor leika æfingaleik með Þrótti gegn Víkingi í vikunni áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. Viktor getur leikið bæði sem bakvörður og á kantinum.

Þróttur hafnaði í 2. sæti 1. deildarinnar á liðnu tímabili og leikur því í Pepsi-deildinni á næsta ári. Félagið hefur fengið einn leikmann til sín en það er sóknarmaðurinn Emil Atlason.

Athugasemdir
banner
banner
banner