Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 25. maí 2015 13:27
Magnús Már Einarsson
Gummi Tóta lagði upp mark fyrir Nordsjælland
Mynd: Instagram
Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í Nordsjælland unnu Hobro 4-2 í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Guðmundur Þórarinsson spilaði allan leikinn með Nordsjælland og lagði upp annað mark liðsins.

Guðjón Baldvinsson kom inn á sem varamaður á 88. mínútu í dag.

Rúnar Alex Rúnarsson og Adam Örn Arnarson sátu allan tímann á bekknum hjá Nordsjælland.

Nordsjælland er eftir sigurinn í sjötta sæti í dönsku úrvalsdeildinni, stigi á eftir Hobro.
Athugasemdir
banner
banner
banner