Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 25. maí 2015 06:00
Magnús Már Einarsson
Mulumbu farinn frá WBA
Mulumbu er á förum.
Mulumbu er á förum.
Mynd: Getty Images
Youssouf Mulumbu, Chris Baird og Jason Davidson fara allir frá West Bromwich Albion þegar samningar þeirra renna út í sumar.

Hinn 28 ára gamli Mulumbu kom til WBA frá PSG á aðeins 175 þúsund pund árið 2009.

Mulumbu var mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum WBA en hann lék 211 leiki fyrir félagið. Á nýliðnu tímabili átti hann hins vegar erfitt uppdráttar.

WBA hefur ákveðið að nýta sér ákvæði í samningum Boaz Myhill og Claudio Yacob og halda þeim í eitt ár í viðbót.

Tony Pulis, stjóri WBA, ætlar einnig að bjóða varnarmanninum Gareth McAuley nýjan samning en hann skoraði mark liðsins í 4-1 tapinu gegn Arsenal í lokaumferðinni í gær.
Athugasemdir
banner