Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. júní 2016 18:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: Reynir S. með sinn þriðja sigur í röð
Reynir S. vann Dalvík/Reyni
Reynir S. vann Dalvík/Reyni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir S. 2 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Ivan Jugovic (´9 )
2-0 Tomislav Misura (´32 )
2-1 Aksentije Milisic (´80 )

Reynir S. hefur verið góðu róli í 3. deild karla upp á síðkastið, en í dag mætti liðið Dalvík/Reyni.

Reynir frá Sandgerði hafði unnið tvo leiki í röð fyrir leikinn í dag og sigurgangan hélt áfram í þessum leik.

Ivan Jugovic skoraði fyrsta markið áður en Tomislav Misura bætti við. Staðan var 2-0 í hálfleik og hlutirnir litu vel út fyrir Reyni.

Í seinni hálfleiknum náði Dalvík/Reynir að minnka muninn þegar Aksentije Milisic skoraði, en meira var það ekki.

2-1 sigur Reynis Sandgerði staðreynd í leiknum og var þetta þriðji sigurleikur þeirra í röð. Liðið er þó aðeins með níu stig eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjum sínum, en Dalvík/Reynir er með tvö stig í 8. sæti.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner