Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. júní 2016 18:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inkasso-deildin: KA vann HK - Toppsætið á Akureyri
Guðmann skoraði sitt fyrsta mark í sumar
Guðmann skoraði sitt fyrsta mark í sumar
Mynd: Heimasíða KA
KA 2 - 0 HK
1-0 Guðmann Þórisson ('28)
2-0 Ásgeir Sigurgeirsson ('77)
Lestu nánar um leikinn

KA er aftur komið á toppinn í Inkasso-deildinni. Þetta var ljóst eftir sigur liðsins á HK í dag.

Þeir gulu komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn þegar miðvörðurinn Guðmann Þórisson skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Hallgrími Mar Steingrímssyni.

Staðan var 1-0 fyrir KA í hálfleik, en í seinni hálfleiknum skoraði hinn efnilegi Ásgeir Sigurgeirsson mjög flott mark. Hann fékk góða sendingu og plataði varnamann HK upp úr skónum. Hann lagði síðan boltann snyrtilega í netið og staðan orðin 2-0 fyrir HK.

Markið hjá Ásgeiri reyndist síðasta mark leiksins og KA er því komið aftur á topinn í Inkasso-deildinni, staður þar sem þeir vilja að öllum líkindum vera.

KA er við hlið nágranna sinna hjá Þór á toppnum og eru bæði lið með 16 stig. Vandræði HK halda aftur á móti áfram, en liðið er aðeins með fimm stig eftir sjö leiki.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner