Heimild: Liverpool Echo
Liverpool er búið að hafna tilboði frá Swansea í Joe Allen, en þetta er haft eftir Liverpool Echo:
Tilboðið var upp á 8 milljónir punda, en Allen er uppalinn hjá Swansea.
Allen fylgdi Brendan Rodgers til Liverpool árið 2012, en Rodgers fór frá Swansea til að taka við Liverpool.
Allen hefur leikið yfir 100 leiki fyrir félagið, en eftir að Rodgers var rekinn hefur honum gengið verr að komast í liðið.
Hann hefur verið á bekknum hjá Jurgen Klopp og Liverpool er talið ætla að selja hann ef betra tilboð berst í hann.
Allen hefur vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu á EM með Wales og verður væntanlega á sínum stað þegar liðið mætir Norður-Írlandi í 16-liða úrslitum í dag.
Athugasemdir