Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. nóvember 2014 23:07
Brynjar Ingi Erluson
Pellegrini: Aguero er magnaður leikmaður
Manuel Pellegrini
Manuel Pellegrini
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City á Englandi, var í skýjunum með 3-2 sigur liðsins á Bayern München í kvöld.

Sergio Aguero var hetja liðsins í kvöld en hann skoraði öll þrjú mörk liðsins og þar af sigurmarkið á 90. mínútu.

Útlit Man City í stöðunni 1-2 var ekki gott en Aguero jafnaði leikinn áður en hann skoraði sigurmarkið og kom liðinu í 2. sæti E-riðils.

,,Öll stórlið þurfa að hafa magnaða leikmenn. Aguero er magnaður leikmaður og mjög mikilvægur," sagði Pellegrini.

,,Það getur ýmislegt gerst í þessu. Við erum jákvæðir en þetta snýst ekki bara um það sem við gerum. Við verðum að reyna okkar besta og til þess að komast áfram þá þurfum við að sigra Roma," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner