Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 25. nóvember 2014 17:00
Magnús Már Einarsson
Rændur meðan hann spilaði gegn Aston Villa
Wanyama varð fyrir leiðinlegri lífsreynslu í gær.
Wanyama varð fyrir leiðinlegri lífsreynslu í gær.
Mynd: Getty Images
Victor Wanyama, miðjumaður Southampton, var svekktur þegar hann kom heim til sín eftir 1-1 jafnteflið gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Óprúttnir aðilar höfðu brotist inn til Wanyama á meðan hann spilaði leikinn.

Þjófarnir stálu ýmsum hlutum og einnig mörg þúsund pundum.

Þá enduðu þjófarnir á að bruna í burtu á Range Rover bifreið Wanyama.

,,Þjófarnir vissu greinilega að hann yrði ekki í húsinu á þessum tíma," sagði fjölskyldumeðlimur Wanyama við fjölmiðla.

,,Þeir snéru húsinu nánast við og hann er í áfalli eftir þetta. Lögreglan var kölluð til og rannsókn er hafin."
Athugasemdir
banner
banner