Maria Selma Haseta hefur gengið til liðs við Val frá FH.
Maria Selma skrifaði undir tveggja ára samning við Val í gær.
Maria Selma skrifaði undir tveggja ára samning við Val í gær.
Hún spilaði 16 leiki með FH í Pepsi-deildinni í fyrra eftir að hafa komið til félagsins frá Sindra.
FH féll úr Pepsi-deildinni síðastliðið haust og Maria Selma vildi spila áfram í efstu deild.
Nokkur félög sýndu henni áhuga en á endanum ákvað Maria að semja við Val.
Maria Selma er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Val frá FH í vetur, en áður höfðu þær Heiða Dröfn Antonsdóttir og Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir skipt yfir í Val.
Athugasemdir