Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. febrúar 2017 13:54
Kristófer Kristjánsson
Championship: Jafntefli í grannaslagnum
Hinn danski Jonas Knudsen skoraði mark Ipswich
Hinn danski Jonas Knudsen skoraði mark Ipswich
Mynd: Getty Images
Norwich 1 - 1 Ipswich Town
0-1 Jonas Knudsen ('63 )
1-1 Murphy ('69 )

Það var einn leikur á dagskrá í ensku B-deildinni í dag en þar mættust erkifjendurnir Norwich og Ipswich Town.

Heimamenn stjórnuðu leiknum á Carrow Road í dag og var það því köld gusa í andlit þeirra þegar Ipswich tók forystuna á 63. mínútu þökk sé marki Jonas Knudsen.

Heimamenn voru þó fljótir að svara og var það Josh Murphy sem jafnaði metin aðeins sex mínútum síðar.

Vond úrslit fyrir heimamenn í Norwich sem fjarlægast umpsilssætin en liðið situr í áttunda sæti, sex stigum frá efstu sex.

Ipswich er í 15. sæti með 42 stig og ljóst að liðið siglir lygnan sjó þetta tímabil.

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner