Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 26. apríl 2015 14:56
Jóhann Ingi Hafþórsson
Van Gaal: Everton átti skilið að vinna
Louis van Gaal.
Louis van Gaal.
Mynd: EPA
Lois van Gaal, stjóri Manchester United var ekki sáttur eftir 3-0 tap sinna manna gegn Everton í dag.


James McCarthy, John Stones og Kevin Mirallas skoruðu mörkin í frábærum sigri en Van Gaal viðurkenndi að Everton átti sigurinn skilið.

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé mótherja okkar berjast meira en við á vellinum."

„Við bjuggum til fimm færi í fyrri hálfleik, Fellaini varð að skora til dæmis. Þeir skoruðu úr skyndisóknum og við þurftum að spila við varnarsinnað lið."

„Everton átti skilið að vinna, þegar úrslitin eru sanngjörn, þá geturu lifað með að tapa," sagði Hollendingurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner