Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. apríl 2017 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Julia Roberts skaut óvart á Ramos - „Þú varst magnaður"
Ramos fékk rautt í El Clasico.
Ramos fékk rautt í El Clasico.
Mynd: Getty Images
Hollywood-leikkonan vinsæla Julia Roberts skaut óvart á varnarmanninn Sergio Ramos eftir El Clasico á sunnudaginn.

Ramos fékk rautt í 3-2 tapi á móti Barcelona, en Börsungar komust á topp spænsku deildarinnar með sigri. Real á þó leik til góða.

Roberts, sem hefur leikið í frægum bíómyndum, var á meðal áhorfenda á Santiago Bernabeu á sunnudaginn, en þar hitti hún Messi, Ronaldo og marga aðra. Þar á meðal Sergio Ramos.

„Þú varst magnaður, eins og venjulega," sagði Robert við Ramos, en hún vissi örugglega ekki að hann hefði fengið rautt spjald.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu, en Roberts hittir Ramos eftir 1 mínútur og 9 sekúndur í því.



Athugasemdir
banner
banner
banner