Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 26. maí 2015 14:50
Arnar Daði Arnarsson
Meiðslamálin
Ásgeir Börkur missir af næstu leikjum Fylkis
Börkurinn missir af næstu leikjum Fylkis.
Börkurinn missir af næstu leikjum Fylkis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Börkur Ásgeirsson leikmaður Fylkis óttast það að vera frá næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann hlaut í byrjun leiks Keflavíkur og Fylkis í gærkvöldi.

Ásgeir þurfti að fara af velli eftir 25 mínútna leik eftir að hafa fundið fyrir verkjum aftan í læri.

„Ég veit ekki hversu alvarlegt þetta er. Ég fæ að vita það á eftir þegar ég hitti sjúkraþjálfarann. Þetta er aðeins skárra í dag en í gær. Mér finnst líklegt að ég verði frá allavegana í 2-3 vikur," sagði hinn grjótharði rokkari, Ásgeir Börkur í samtali við Fótbolta.net.

Þetta er áfall fyrir Fylki, því framundan eru þrír leikir á næstu tveimur vikum og líklegt að Ásgeir missi af þeim öllum.

Fylkir mætir Val næstkomandi sunnudag í Pepsi-deildinni, á miðvikudaginn í næstu viku mæta þeir Njarðvík í bikarnum og síðan fara þeir upp á Skaga og mæta ÍA í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner