Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. maí 2016 12:14
Magnús Már Einarsson
Zlatan: Ég ákvað framtíðina fyrir löngu síðan
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic segist vera búinn að ákveða hvar hann spilar á næsta tímbili.

Þessi 34 ára gamli Svíi er á förum frá PSG en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester United.

„Það er búið að skrifa framtíðina. Ég ákvað mig fyrir löngu síðan. Ég á bara eftir að ýta á takkann," sagði Zlatan.

Zlatan brosti þegar hann var spurður út í það hvort hann sé á leið til Manchester United: „Sjáum hvað gerist," sagði Zlatan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner