Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 26. maí 2018 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pulisic einbeittur á Dortmund
Christian Pulisic.
Christian Pulisic.
Mynd: Getty Images
Bandaríkjamaðurinn ungi Christian Pulisic er lítið að hugsa um þann möguleika á að yfirgefa Dortmund en hann hefur verið orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég er ekkert mikið að fylgjast með hvað er verið að segja og skrifa í fjölmiðlum, flestir vita meira um það en ég,“ sagði Pulisic.

„Auðvitað er enska úrvalsdeildin frábær deild, það var draumur minn þegar ég var yngri að spila þar en núna er ég samningsbundinn Dortmund og er að leggja mikið á mig til að ná langt þar.“

„Það getur auðvitað allt gerst í heimi atvinnuíþróttamannsins en ég er mjög einbeittur á Dortmund núna,“ sagði Pulisic að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner