Það vakti gríðarlega athygli frétt sem birtist á Fótbolta.net í gær af Orra Einarssyni einum af meðlimum Áttunnar sem lét húðflúra á sig nafnið á Fanndísi Friðriksdóttur á bakið á sér.
Ástæðan var einföld, Orri var búinn að gera loforð um að húðflúra öll nöfn íslensku stelpnanna sem skora á EM í Hollandi. Orri segir að þetta hafi vakið meiri athygli en hann átti von á.
Ástæðan var einföld, Orri var búinn að gera loforð um að húðflúra öll nöfn íslensku stelpnanna sem skora á EM í Hollandi. Orri segir að þetta hafi vakið meiri athygli en hann átti von á.
„Við ætluðum að krydda aðeins upp á ferðina okkar en það er gaman að þessu," sagði Orri sem segist sjá lítið eftir þessu.
„Ég er með mikið af húðflúrum þetta er fínt. Ég er stoltur af stelpunum og fínt að bæta þessu við."
Orri segist ekki alveg hafa áttað sig á því fyrir mót hversu mörgum mörkum hann ætti að búast við frá íslenska liðinu á mótinu.
„Ég bjóst alveg við slatta eins leiðinlegt og það er að segja það, þá er kannski fínt að það sé bara komið eitt. Þetta er svolítið leiðinlegt veðmál upp á það að gera að ég bæði vonast til að þær skori og skori ekki. Við hefðum kannski átt að hugsa þetta aðeins lengra."
En hvernig leið honum þegar hann sá Fanndísi skora gegn Sviss?
„Þetta voru blendnar tilfinningar en skemmtilegt," sagði Orri sem vonast til að Sara Björk skori í leiknum á eftir, jafnvel Sif Atladóttir líka.
Ísland mætir Austurríki í lokaleik sínum á Evrópumótinu í Kastalanum í Rotterdam klukkan 18:45 í kvöld.
„Ég er mikill Söru Bjarkar maður, ég er hennar stærsti aðdáandi. Ég er að vona að hún skori á eftir þá fer ég glaður heim eftir leik."
„Sif Atla er grjóthörð líka. Það væri stemning að fá hana á bakið líka."
Viðtalið við Orra má sjá í heild sinni hér að ofan.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir