Rapid Wien vann þægilegan 4-0 sigur á BW Linz í 16-liða úrslitum austurrísku bikarkeppninnar í kvöld.
Wien var komið í 3-0 fyrir hlé í sigri sem var aldrei í hættu. Arnór Ingvi byrjaði á bekknum hjá Rapid en hann kom inná þegar að um korter var eftir.
Hann komst í færi en skot hans utan teigs var varið, það kom hins vegar ekki af sök enda öruggur sigur Rapid staðreynd.
Austria Wien, Salzburg og SKN St. Pelten komust einnig í 8-liða úrslitin í kvöld.
Athugasemdir