Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 26. október 2016 20:52
Jóhann Ingi Hafþórsson
Deildabikarinn: United vann borgarslaginn
Juan Mata fagnar sigurmarkinu.
Juan Mata fagnar sigurmarkinu.
Mynd: Getty Images
Manchester Utd 1 - 0 Manchester City
1-0 Juan Mata ('54 )

Juan Mata var hetja Manchester United sem sló granna sína í Manchester City úr leik í enska deildabikarnum í kvöld.

Manchester United var sterkara liðið í fyrri hálfleiknum en tókst þó ekki að skora og endaði hann markalaus.

Juan Mata skoraði hins vegar eftir tíu mínútur í seinni hálfleik er hann kláraði vel úr góðu færi í tegnum eftir undirbúning Zlatan Ibrahimovic. Smelltu hér til að sjá markið.

United var nær því að bæta við en City að jafna en eitt mark dugði til að senda United í 8-liða úrslitin en þetta var sjötti leikur City í röð án sigurs.
Athugasemdir
banner
banner
banner