Úrslitin eru ráðin í Meistaraspánni fyrir síðasta leik tímabilsins, sjálfan úrslitaleikinn.
Ljóst er að Fótbolti.net endar á toppnum, Tryggvi Guðmundsson í öðru sæti og Sigurbjörn Hreiðarsson í því þriðja.
Hér má sjá spána fyrir úrslitaleik Real Madrid og Atletico Madrid klukkan 18:45 annað kvöld.
Real Madrid vann í framlengdum leik þegar þessi lið mættust í úrslitum fyrir tveimur árum.
Skiptar skoðanir eru á því hvernig leikurinn fer á morgun en spámennirnir telja ekki ólíklegt að hann fari í framlengingu.

Sigurbörn Hreiðarsson:
Real Madrid 1 - 2 Atletico Madrid (Eftir framlengingu)
Atletico vinnur leikinn 2-1 Gæti trúað að hann færi í framlengingu. Þeir munu nota leikinn fyrir tveimur árum til að mótivera sig, ætla ekki að lenda í sama hlutnum aftur og negla þetta núna.
Tryggvi Guðmundsson:
Real Madrid 1 - 0 Atletico Madrid
Skítsmeykur um að þetta verði dálítið lokaður leikur þar sem þessi lið þekkjast afar vel. Sterkar varnir sem koma í veg fyrir fljótandi leik og lítið um færi. Tippa á að Real nái þó inn einu marki á þessum 90 mínútum. Sem sagt 1-0 fyrir Real Madrid.
Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Real Madrid 1 - 2 Atletico Madrid (Eftir framlengingu)
Það hefur verið lítið skorað í leikjum þessara liða í deildinni í vetur, Atletico unnið einn og eitt jafntefli. Þetta verður refskák sem Diego Simeone sigrar að lokum. CR7 með skallamark fyrir Real, Griezman með fyrra mark Atletico en Torres, sem kemur inn á í seinni hálfleik, lokar þessu fyrir Atletico í framlengingunni.
Staðan (3 stig fyrir rétt skor - 1 stig fyrir rétt tákn)
Fótbolti.net - 27
Tryggvi Guðmundsson - 21
Sigurbjörn Hreiðarsson - 16
Athugasemdir