Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. júlí 2016 19:37
Ívan Guðjón Baldursson
Di Marzio og Sky: Félagsskipti Pogba afgreidd fyrir helgi
Mynd: Getty Images
Gianluca Di Marzio og Sky Italia greina frá því að félagsskipti Paul Pogba til Manchester United verða afgreidd fyrir helgi.

Ítalski fréttamaðurinn Di Marzio er þekktur fyrir að hafa rétt fyrir sér þegar það kemur að leikmannamarkaðinum en hann hefur haldið því lengi fram að Pogba sé á leið til Man Utd.

Di Marzio segir að Rauðu djöflarnir hafi samþykkt að greiða þá vænu summu sem Mino Raiola, umboðsmaður Pogba, fær í sinn hlut fyrir félagsskiptin.

Heildarkostnaður Man Utd gæti því numið um 145 milljónum evra því Juventus vill 120 milljónir fyrir franska miðjumanninn.
Athugasemdir
banner
banner