Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. ágúst 2015 09:00
Arnar Geir Halldórsson
Krychowiak verður áfram hjá Sevilla
Grzegorz Krychowiak
Grzegorz Krychowiak
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn knái, Grzegorz Krychowiak, mun halda áfram að leika fyrir Sevilla á þessari leiktíð.

Þetta staðfesti kappinn á Twitter síðu sinni í gær og batt þar með enda á sögusagnir þess efnis að hann væri á förum til Arsenal.

Krychowiak vakti athygli fyrir frammistöðu sína með Sevilla á síðasta tímabili og hefur verið orðaður við Arsenal í allt sumar.

Þessi 25 ára Pólverji var valinn í lið ársins í La Liga í fyrra en hann hefur riftunarverð í samningi sínum upp á 21,2 milljónir punda.



Athugasemdir
banner
banner
banner