Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. desember 2014 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mignolet hæstánægður að fá annað tækifæri
Simon Mignolet hefur legið undir mikilli gagnrýni.
Simon Mignolet hefur legið undir mikilli gagnrýni.
Mynd: Getty Images
Simon Mignolet var hæstánægður með að fá tækifæri til að spila gegn Burnley í gær og segist hann þurfa að standa sig til að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu á ný.

Belginn missti byrjunarliðssæti sitt hjá Liverpool til Brad Jones fyrr í þessum mánuði en hann hefur verið mikið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína.

Jones var búinn að byrja þrjá leiki í röð en hann þurfti að fara af velli eftir 15 mínútur gegn Burnley.

,,Maður þarf alltaf að vera tilbúinn ef þú ert á bekknum og ert varamarkmaður. Það getur allt gerst í upphituninni svo ég reyni að undirbúa mig eins og venjulega og þegar þú færð tækifærið vonastu til að gera vel."

,,Það er gott á milli mín og Brad Jones. Við leggjum hart af okkur. Hann var óheppinn að meiðast en ég er viss um að hann komi til baka bráðum. Ég var mjög glaður að fá tækifærið mitt hins vegar," sagði Belginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner