Stjarnan og Breiðablik munu mætast í úrslitum Fótbolta.net mótsins en þetta varð ljóst eftir að riðlakeppnin kláraðist í gær.
Stjarnan vann FH í úrslitum mótsins í fyrra en Breiðablik vann mótið 2012 og 2013.
Úrslitaleikurinn mun fara fram í Kórnum klukkan 20:15 næstkomandi þriðjudagskvöld en frítt er inn líkt og á alla aðra leiki mótsins.

Keflavík og FH leika um 3. sætið í mótinu en sá leikur fer fram í Reykjaneshöllinni á laugardag.
Úrslitaleikur - Þriðjudaginn 3. febrúar
20:15 Stjarnan - Breiðablik (Kórinn) - Beint á SportTv.is
Leikur um 3. sæti - Laugadaginn 31. janúar
10:30 Keflavík - FH (Reykjaneshöll)
Leikur um 5. sæti - Sunnudaginn 1. febrúar
14:30 ÍA - ÍBV (Akraneshöllin)
Leikur um 7. sæti - Föstudaginn 6. febrúar
20:00 Þróttur R. - Grindavík (Egilshöll)
Athugasemdir