Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 28. maí 2016 17:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pepsi-kvenna: Harpa tryggði Stjörnunni sigur í Eyjum
Harpa tryggði Stjörnunni sigur
Harpa tryggði Stjörnunni sigur
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
ÍBV 0 - 1 Stjarnan
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir (´54 )
Nánar um leikinn

Næst síðasta leik dagsins í Pepsi-deild kvenna var að ljúka, en ÍBV fékk Stjörnunna í heimsókn til Eyja.

Fyrir leikinn var Stjarnan í 2. sæti deildarinnar og gátu með sigri komist á toppinn. ÍBV var í 7. sæti með þrjú stig fyrir leikinn.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik, en snemma í þeim seinni slapp Harpa Þorsteinsdóttir í gegn og átti skot sem var varið. Hún tók frákastið sjálf og skoraði og setti boltann í autt markið.

ÍBV fékk færi til að jafna, en það tókst ekki. Stjarnan fer því á toppinn aftur með tíu stig. ÍBV er þó áfram í 7. sæti með þrjú stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner