„Við þurftum að hafa fyrir þessu og erum mjög sáttir við þrjú stig í dag," sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson sem skoraði fyrsta mark FH í 1-3 sigri á Fjölni í kvöld.
Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 3 FH
„Það var brösug byrjun en maður finnur það sjálfur þegar það kemur smá sjálfstraust þá getur maður þetta vel. Eftir að maður skorar mark bústast maður upp og þá kemur þetta hægt og bítandi."
Fjölnisliðið átti leikinn fyrri hluta seinni hálfleiksins í dag.
„Ég er sammála því, þeir komu sterkir til baka í byrjun seinni hálfleiks. Þá áttuðum við okkur á að við þyrftum að fara í gang og hafa fyrir þessu og mér fannst við gera það í restina og spiluðum fantagóðan fótbolta."
Nánar er rætt við Þórarinn Inga í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir