Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. júlí 2015 21:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: KH með sigur á Vatnaliljunum - KB kom til baka gegn SR
KH vann í kvöld
KH vann í kvöld
Mynd: KH
Þrír leikir voru á dagskrá í 4. deild karla í kvöld en leikið var í B- og D-riðlum.

Í B-riðli vann KH 4-1 sigur á Vatnaliljunum, en KH fór með sigrinum á topp riðilsins með 22 stig. Vatnaliljurnar eru í fimmta sæti með tíu stig.

Í D-riðli vann Kría góðan 5-2 sigur á toppliði Hvíta Riddarans og KB kom til baka gegn SR og vann 4-2 sigur.

Í D-riðli er Hvíti Riddarinn á toppnum með 24 stig, en Kría er í öðru sæti með 19 stig.

KB er í fjórða sæti riðilsins með 11 stig á meðan SR situr á botninum með fjögur stig.

B-riðill
KH 4-1 Vatnaliljur

1-0 Alexander Lúðvígsson ('11)
2-0 Atli Sigurðsson ('15)
2-1 Garðar Sigurðsson ('17)
3-1 Atli Sigurðsson
4-1 Kristófer Páll Lentz ('85)
Rautt spjald: Jóhann Gunnar Baldvinsson, Vatnaliljur('24)

D-riðill
Kría 5-2 Hvíti Riddarinn

1-0 Garðar Guðnason ('22)
1-1 Aron Elfar Jónsson ('37)
2-1 Arnar Þór Helgason ('41)
3-1 Eiríkur Ársælsson ('73)
3-2 Elmar Snær Hilmarsson ('77)
4-2 Eiríkur Ársælsson ('81)
5-2 Egill Ploder Ottósson ('85)

KB 4-2 SR
0-1 Markaskorara vantar ('5)
0-2 Markaskorara vantar ('42)
1-2 Aron Daníelsson('55)
2-2 Aron Daníelsson ('71)
3-2 Ólafur Jónsson ('76)
4-2 Aron Daníelssson('79)
Athugasemdir
banner
banner