Sharla Passariello hefur gengið til liðs við Selfoss fyrir síðari hlutann í Pepsi-deild kvenna.
Passariello á fjóra landsleiki að baki fyrir Wales en hún er 24 ára gömul. Hún spilaði síðast með Bristol á Englandi.
Passariello var einungis 17 ára þegar hún spilaði sinn fyrsta landsleik en hún hefur ekki bætt mörgum leikjum í safnið síðan þá.
Guðmunda Brynja Óladóttir, framherji Selfyssinga, hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur og því á Passariello að koma og hjálpa liðinu með sóknarleikinn.
Selfoss er með níu stig í 8. sæti í Pepsi-deild kvenna en liðið hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir