Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 29. júlí 2016 11:19
Magnús Már Einarsson
Gomis til Marseille á láni (Staðfest)
Bafetimbi Gomis.
Bafetimbi Gomis.
Mynd: Getty Images
Franska félagið Marseille hefur fengið framherjann Bafetimbi Gomis á láni frá Swansea.

Lánssamningurinn gildir þar til næsta sumar.

Hinn þrítugi Gomis er Frakki en hann hafði raðað inn mörkum í frönsku deildinni með St. Etienne og Lyon áður en hann fór til Swansea sumarið 2014.

Swansea ætlar að reyna að fá tvo nýja framherja áður en enska úrvalsdeildin hefst.

Leonardo Ulloa (Leicester), Fernando Llorente (Athletic Bilbao) og Peter Crouch (Stoke) eru á meðal framherja sem hafa verið orðaðir við Swansea að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner