Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 29. ágúst 2015 16:33
Elvar Geir Magnússon
400 leikja Daði: Hélt að við ætluðum að klúðra þessu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar stigu stórt skref í að bjarga sér frá falli úr 1. deildinni í dag með 3-1 sigri gegn BÍ/Bolungarvík. Fram er nú sex stigum frá fallsæti og þarf ansi mikið að gerast til að liðið falli.

Daði Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Fram en hann var að leika sinn 400. leik fyrir félagið!

Lestu um leikinn: Fram 3 -  1 BÍ/Bolungarvík

„Þetta var algjörlega nauðsynlegur sigur. Ég hélt að við ætluðum að klúðra þessu á tímabili en svo fórum við að gera það sem við ætluðum að gera frá upphafi, setja pressu á þá. Þetta kom síðustu 15-20 mínúturnar," segir Daði.

„Við höfum verið sveiflukenndir á þessu tímabili og átt í vandræðum með að ná tveimur góðum leikjum í röð. Tímabilið hefur verið vonbrigði, við ætluðum okkur miklu meira. Við getum lært mikið af þessu tímabili og líka því síðasta. Við verðum að læra af mistökunum."

Daði hefur svo sannarlega gengið í gegnum súrt og sætt í búningi Fram.

„Ég hefði viljað fleiri titla en við höfum bjargað okkur frá falli í síðasta leik oftar en ég kæri mig um að muna. Vonandi fer þetta á uppleið núna," segir Daði sem viðurkennir að vera farinn að íhuga að leggja skóna á hilluna en vill ekki vera með neinar yfirlýsingar.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner