Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 29. nóvember 2015 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Simeone mjög spenntur fyrir framtíð Atletico
Diego Simeone tekur selfie
Diego Simeone tekur selfie
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, segir ekki hægt að bera liðið í dag saman við liðið sem vann titilinn á þarsíðustu leiktíð.

Atletico hefur verið á miklu flugi að undanförnu og vann enn einn leikinn í gær þegar Antoine Griezmann tryggði liðinu 1-0 sigur á Espanyol.

„Ég sé ekki líkindi með liðinu okkar í dag og liðinu sem vann deildina fyrir tveim árum. Það voru karlmenn og yngsti leikmaðurinn í liðinu var Koke.”

„Í dag eru þetta bara ungir strákar. En það þýðir líka að þeir munu bæta sig hratt og við munum taka næsta skref. Ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni,”
segir Simeone.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner