Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. apríl 2016 17:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martinez: Sigurtilfinningin gerir þér kleift að halda áfram
Martinez var sáttur með sigurinn
Martinez var sáttur með sigurinn
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, stjóri Everton, var glaður eftir 2-1 sigur liðsins á Bournemouth í dag.

Mikil pressa hefur verið á Martinez, en stuðningsmenn liðsins eru allt annað en ánægður. Því var þessi sigur mikilvægur, en liðið er nú í 11. sæti með 44 stig.

„Sigurinn var mjög mikilvægur, en þetta hefur verið mjög tilfinningalegur tími. Við urðum að vinna, en við sýndum að við værum lið með karakter,“ sagði Martinez.

Eins og áður segir þá eru stuðningsmenn Everton allt annað en ánægðir Martinez og ákváður þeir að mótmæla í dag. Martinez er þó ekkert að stressa sig á hlutunum.

„Í fótbolta þá þarftu að einbeita þér að því að hafa áhrif á leikinn og að vinna. Sigurtilfinningin gerir þér kleift að halda áfram. Það er það sem við tökum út úr leiknum í dag.“
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner